Þýskum sakamanni meinuð landganga
Þjóðverja var vísað úr landi í morgun en hann var í fyrra tekinn með 5 kg. af hassi og var sleppt eftir að hafa afplánað 5 mánuði af refsingu sinni.Í ljósi bakgrunns síns var honum meinuð landganga og sendur aftur utan í morgun. Hann kom með sömu vél og Danirnir þrír sem voru teknir með 5 kg. af hassi í gærdag.