Þyrla sótti veikan mann við gosstöðvarnar
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti veikan mann að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli á tíunda tímanum í kvöld. Maðurinn var nýkominn af gosstöðvunum og komin niður á Suðurstrandarveg þegar óskað var eftir aðstoð þyrlunnar.
Áhöfn þyrlunnar var við æfingar skammt frá og var komin á vettvang fáeinum mínútum síðar. Hún flutti manninn Landsspítalann. Ekki er vitað um ástand mannsins að svo stöddu.