Þyngsta einstaka uppskipun í sögu Grindavíkurhafnar?
„Öruggur máti til að byggja hús,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Laufáss.
Flutningaskipið Wilson Fedje lagðist við bryggju í Grindavík sunnudaginn 4. desember og sagði Sigurður Kristmundsson hafnarstjóri, að líklega hafi verið um ræða stærstu einstöku hífingar í sögu Grindavíkurhafnar. Flutningurinn samanstóð að mestu af sex forsmíðuðum raðhúsahúsaíbúðum sem komu til landsins í tólf einingum en hver vegur tæp 60 tonn.
Það er byggingarfyrirtækið Laufás sem stendur að þessum innflutningi húsanna en fyrirtækið er að byggja í nýja hverfinu í Grindavík, Hlíðahverfi, í götunum Fálkahlíð og Lóuhlíð. Þar hyggst fyrirtækið reisa tvö raðhús, hvort með þremur íbúðum.
„Laufás er byggingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í að framleiða forsmíðuð hús en húsin eru byggð í Eistlandi, sem er langstærsti framleiðandi timburhúsa til útflutnings í Evrópu. Samstarfsaðili Laufáss í Eistlandi heitir Akso-haus og er með mjög öflugt gæðakerfi en húsin eru byggð inni og koma nánast tilbúin að fullu til Íslands. Hver eining kemur með steyptum sökkli, veggjum og þaki. Ég skoðaði mjög vel framleiðendur í Evrópu og var fyrst að velta fyrir mér að flytja inn veggeiningar. Sú byggingarlist hefur verið vinsæl á Íslandi á undanförnum árum en þegar ég kynntist kostum forsmíðaðra húsa í Eistlandi þá varð ég strax hugfanginn,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Laufáss.
Minni líkur á göllum
Húsin eru kláruð frá a-ö inni í verksmiðju, við rétt hita- og rakastig en það minnkar líkurnar til muna á að upp komi galli á byggingartímanum. „Við þetta fylltist ég öryggistilfinningu en það er ábyrgðarhluti að byggja hús, þetta er ekki bara stór fjárfesting fyrir fólk heldur getur húsið líka haft áhrif á heilsu þess. Ég mun því aldrei bjóða upp á önnur hús en forsmíðuð. Það er að mínu mati ekki hægt að byggja hús á öruggari máta, við búum við sérstakt veðurfar þar sem varla er hægt að tengja saman þrjár vikur án úrkomu en það gefur auga leið að ekki er gott að einangra hús eða klæða við slík skilyrði. Þú vilt hafa fráganginn þannig að raki komist ekki að á smíðatíma,“ sagði Hjálmar.
Íslensk hönnun í samvinnu við erlenda fagaðila
Þar sem Laufás er að bjóða upp á nýja lausn í húsasmíði á Íslandi var gott fyrir Hjálmar að hafa sambönd. „Ég er að bjóða upp á hús fyrir íslenskar aðstæður og þess vegna var mjög gott að þekkja Aðalstein Snorrason en hann var einn stofnenda Arkís. Aðalsteinn er mjög reynslumikill þegar kemur að hönnun húsa á Íslandi en svo skemmtilega vildi til að hann hafði verið að velta fyrir sér forsmíðuðum húsum í um áratug. Verkfræðihönnunin er í höndum Verkfræðistofu Reykjavíkur en svo þarf að eiga sér stað samtal milli teymisins hér á landi og hjá byggingaraðilanum í Eistlandi og það samstarf gekk allt saman mjög vel. Hönnunarforsendur Laufásshúsanna voru vistvæni, góð ending, að tryggja bæði flæði birtu inn í íbúðarrýmið og að tryggja gæði hljóðvistar. Þess vegna vil ég trúa að Laufás sé að byggja vistvænt og öruggt hús fyrir íslenskar aðstæður.”
Frá skipi á lóð
Það er eitt að sigla yfir Atlantshafið með húsaeiningar í desember, annað að koma þeim upp úr skipi og svo þarf að koma þeim fyrir á viðkomandi lóð. „Þar sem um miklar þyngdir er að ræða þá þurfti ég að fá sérhæfða aðila til að flytja húseiningarnar frá skipi að lóðinni en það þarf mjög öfluga krana en þeir hífa hvern og einn á vagn sem er svo er keyrður að lóðinni. Það eru innbyggðir glussatjakkar á hverri einingu og þegar á lóðina er komið er hverri og einni slakað rólega og mjög nákvæmlega niður. Einingarnar tengjast síðan saman á stálplötum,“ sagði Hjálmar að lokum.
Fyrirtæki í skipaflutningum, umboðsmenn og innflutningsaðilar eru í auknum mæli að nýta sér hafnarþjónustu og -aðstöðu í Grindavíkurhöfn en á árinu 2022 hafa 25 flutningaskip komið til Grindavíkurhafnar en þau voru 8 talsins í fyrra sem gerir ríflega þreföldun á skipakomum milli ára.