Þykknar upp með norðaustanátt
Á Garðskagavita voru ANA 6 og 2,6 stiga hiti kl. 8.
Klukkan 6 var austan- og norðaustanátt, víða 10-15 m/s en 20-25 við suður- og suðausturströndina. Léttskýjað vestantil á landinu, en él NA- og A-lands. Hiti var frá 3 stigum í Skaftafelli og Vestmannaeyjum niður í 6 stiga frost á Blönduósi.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Norðaustan 10-15 m/s og þykknar upp; slydda eða rigning síðdegis. Hiti 0 til 5 stig. Léttir til í nótt.
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Austan- og norðaustanátt, víða 10-15 m/s, en 18-23 m/s við suður- og suðausturströndina. Snjókoma eða él á SA- og A-landi og einnig í öðrum landshlutum síðdegis, en rigning eða slydda SV-lands. Vægt frost, en 0 til 5 stiga hiti suðvestantil á landinu. Stöku él A-lands á morgun, annars léttskýjað.
Mynd: Frá Mánagrund: VF-mynd:elg