Bygg
Bygg

Fréttir

Þykknar upp í kvöld
Miðvikudagur 21. september 2005 kl. 09:56

Þykknar upp í kvöld

Klukkan 6 var fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt. Léttskýjað víða um land, en sums staðar él vestantil. Hiti var frá 6 stigum á Garðskagavita niður í 6 stiga frost á Kálfhóli á Skeiðum.

Yfirlit:
Við Vestfirði er nærri kyrrstæð 1003 mb lægð, en langt SSV í hafi er 995 mb lægð á hreyfingu NA í stefnu á Færeyjar.


Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Fremur hæg suðaustlæg eða breytileg átt, en austan 5-10 í kvöld. Skýjað með köflum og sums staðar skúrir eða slydduél, einkum þegar líður á daginn. Hiti 0 til 8 stig, en víða næturfrost í innsveitum. Norðaustan 8-15 á morgun og rigning eða slydda, en þurrt að kalla sunnanlands.

Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt og nokkuð bjart veður, en stöku skúrir eða slydduél. Austan 3-8 m/s í kvöld og þykknar upp. Hiti 0 til 8 stig, en hætt við næturfrosti.

Kortið er tekið af vef Veðurstofunnar
Bílakjarninn
Bílakjarninn