Þykknar upp í dag með rigningu eða súld í nótt
Klukkan 6 var hæg suðvestan átt norðvestantil en annars norðanátt, 5-10 m/s víðast hvar. Léttskýjað vestan- og sunnanlands en skýjað og stöku él norðaustantil. Kaldast var 5 stiga frost á Ásgarði í Dölum en hlýjast 5 stiga hiti á Bjargtöngum.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Snýst til fremur hægrar suðvestlægrar áttar í dag og þykknar smám saman upp. Dálítil rigning eða súld í nótt. Hiti 4 til 9 stig síðdegis.
Af vef Veðurstofunnar. Kortið sýnir veðrið um hádegi í dag.