Þúsundkall á kjaft í mótvægisaðgerð menntamálaráðherra
Það lætur nærri að hver Suðurnesjamaður fái 1000 krónur hver í mótvægisaðgerðum menntamálaráðuneytisins vegna tímabundins aflasamdráttar. 20,2 milljónir króna koma í hlut Suðurnesjamanna.
Menntamálaráðherra hefur ákveðið að veita allt að 180 m.kr. til menntaverkefna á landsbyggðinni sem eru þáttur í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna tímabundins aflasamdráttar. Við undirbúning styrkveitinga voru símenntunarmiðstöðvar og framhaldsskólar á landsbyggðinni skilgreind sem samstarfsaðilar verkefna sem undirbúin voru í samráði við hagsmunaðila á viðkomandi svæði (stéttarfélög, fyrirtæki og sveitarfélög). Áhersla var lögð á að styrkja menntunarverkefni sem væru til þess fallin að mæta afleiðingum samdráttar í fiskveiðum og fiskvinnslu.