Þúsundir mjólkurlítra gefins í Kaskó
Kaskó gerði samkeppnisaðilum ómögulegt að skáka sér í verði á mjólkurlítra í dag, þegar þeir buðu hann ókeypis á meðan að birgðir entust. Starfsfólk Kaskó spaugaði með það að nú væri hart í árinni því þau fengu sennilega ekki borgað um mánaðarmótin þar sem Kaskó væri farið að gefa vörur. Að vonum var mikil örtröð í verslun Kaskó og fólk var ánægt með þetta framtak. Að auki var verð á grænmeti hjá Kaskó langt undir verði og var salan á grænmeti áttfalt meiri en venjulegur dagur hjá þeim.
VF-Myndir/Bjarni - Kaskó í dag.