Þurrt að mestu en kalt
Veðurspá fyrir Faxaflóa gerir ráð fyrir austan og norðaustan 5-10 m/s. Skýjað og þurrt að mestu og hiti um frostmark.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag og laugardag:
Norðaustan 8-13 m/s, en 13-18 SA-lands og við norðvesturströndina. Léttskýjað SV-lands, annars él. Frost 0 til 8 stig, en frostlaust að deginum syðst.
Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Ákveðin norðaustanátt og snjókoma eða él, einkum NA- og A-lands, en þurrt á SV- og V-landi. Hiti 0 til 5 stig að deginum sunnantil, annars vægt frost.
Af www.vedur.is