Þurfum að standa með HSS og styðja
- segir Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra
„Hér erum við í dag að upplifa stórkostlegar umbætur og miklu stærri en maður áttar sig á og það er mikilvægt að koma því á framfæri. Ég segi gjarnan við fólkið mitt í ráðuneytinu að við erum liðið á bakvið liðið og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er hjartað í þessu bæjarfélagi til að þjónusta fólk sem þarf á heilbrigðisþjónustu að halda. Hér hefur átt sér stað mikil fjölgun á tiltölulega skömmum tíma og í raun ótrúlegt hvað stofnunin hefur sýnt mikil þolgæði í gegnum þetta og við þurfum að standa með henni og styðja hana. Þessi dagur er búinn að vera mjög ánægjulegur að upplifa og sjá þessar umbætur sem eru í farvatninu,“ sagði Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, í samtali við Víkurfréttir þegar ný röntgendeild var opnuð á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í síðustu viku.
Hvað sérð þú sem heilbrigðisráðherra að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eigi að leggja áherslu á?
„Hún á að geta þjónustað mest allar aðgerðir og alla minniháttar bráðaþjónustu. Hún á að geta tekið álagið af Landspítalanum þar sem flóknustu aðgerðirnar eiga sér stað. Þess vegna er svo mikilvægt að við styrkjum stofnunina. Þetta röntgentæki sem við sjáum hér í dag í nýrri aðstöðu er eitt skref á þeirri vegferð.“
Er möguleiki á að það verði aftur skurðstofuþjónusta á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í náinni framtíð?
„Það er alls ekki útilokað. Það sem hefur staðið í veginum er mönnunin. Það er kominn áratugur síðan var skurðstofunum lokað og þá var mönnunarvandi og hann er enn til staðar. Við erum alltaf að kljást við þessa takmörkuðu auðlind sem er mannauðurinn. Þetta snýst allt um þjónustu af mjög vel menntuðu og hæfu starfsfólki og þess vegna verðum við að einbeita okkur að því að hlúa að stofnuninni og því sem hún ætti að vera að gera og skilgreina hlutverkin mjög vel. Þetta er orðið 30.000 manna svæði hér og flugvöllur og við þurfum að tryggja góða þjónustu. Það blasir við hvað það er mikill akkur í því að styrkja stofnunina eins og hún er staðsett hérna á þessu svæði. Sama gildir um allt suðurlandið fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurlands og kragasvæðið sem við höfum stækkað og útvíkkað til að kjarna betur hlutverk Landspítalans. Það dregur fram hvað það eru mikilvægar umbætur að eiga sér stað hér og við þurfum að segja frá og samfélagið þarf að upplifa þær.“
Willum Þór segir að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hafi mætt andstreymi við það að þurfa að mæta mikilli íbúafjölgun á skömmum tíma. Hann segir að næsta stóra skref sem þurfi að taka hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sé heilsugæslan. Auglýst var eftir húsnæði fyrir bráðabirgða heilsugæslustöð í nóvember á síðasta ári.
„Því miður gerast hlutir stundum of hægt þegar við erum að tala um að byggja undir opninbera þjónustu. Við vitum það að eftir fjögur ár á að opna nýja og nútímavædda heilsugæslu í Innri-Njarðvík en það er bara of langur tími og fjöldinn er of mikill og heilusgæslan er of lítil. Við þurfum hér með öllum þeim sem standa að pólitíkinni á svæðinu og ekki síst stofnuninni, hún þarf alltaf að vera í fyrirrúmi í þjónustu við fólkið, hvernig við getum hraðar hjálpað heilsugæslunni hér og komið á bráðabigrðastöð. Hin mun alltaf opna. Sama gildir um heilsugæslusel í Garði og Sandgerði, það er full ástæða til að taka það. Ef okkur tekst að taka sameiginlega ákvörðun um þetta hvar hún á að vera og hvernig við byggjum hana hraðar, kannski bara á tveimur árum, þá getum við tekið álagið af hér. Við þurfum um leið að tryggja mönnunina.“
Þegar ráðherra er spurður hvort Suðurnesjamenn þurfi virkilega að bíða í tvö ár eftir bráðabirgða heilsugæslustöð, segir hann að það sé betra að hafa tímann fyrir sér og skapa ekki of miklar væntingar þó hugurinn sé mikill. Vonandi sé hægt að opna fyrr því þetta sé málefni sem brennur á heimafólki.