Þungir mánuðir framundan
„Maður lítur björtum augum til framtíðarinnar en ég held að við þurfum að þreyja þorrann. Ég held að þessi verkefni muni komast af stað en næstu 12 – 18 mánuðir gætu orðið þungir. Þá er það bara spurningin hvort við höfum dug til að halda það út,“ segir Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði, aðspurður um útlitið framundan í atvinnumálum.
Íbúum hefur fækkað í Garði síðustu mánuði og er íbúatalan nú komin niður fyrir 1500. Fyrir um ári síðan voru þeir um 1540. Ásmundur segist trúa því að sjást muni til sólar að nýju eftir þessa mánuði. „Staðan er þannig að fólkið er orðið aðframkomið, hér á Suðurnesjum er atvinnuleysið mest. Fólk leitar þangað sem það hefur von um betra lífsviðurværi og er farið að tínast í burtu. Það er okkar verkefni að snúa þessari þróun við,“ segir Ásmundur.
Aðspurður hvort einhver sérstök atvinnuverkefni séu framundan á vegum bæjarfélagins, segir Ásmundur það ekki liggja fyrir að svo komnu máli þar sem vinna við fjárhagsáætlun er framundan.
„Við eigum auðvitað okkar drauma um verkefni framtíðarinnar þegar hjólin fara a snúast aftur. Stækkun leikskóla og viðbygging við íþróttahúsið er þar á meðal, fyrir utan viðhald gatna og fegrun umhverfis svo eitthvað sé nefnt. Það eru mörg verkefni á teikniborðinu sem bíða betri tíðar,“ sagði Ásmundur.
Sem kunnugt er hefur Runólfur Ágústsson hefur verið ráðinn verkefnisstjóri hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Hann mun hafa það verkefni með höndum að leysa úr þeim vanda sem Helguvíkurverkefnið hefur ratað í og leiða aðila saman.
Ásmundur segist binda vonir við að þessi ráðning ýti málunum af stað.
Atvinnumálin eru það sem helst brenna á íbúm Suðurnesja þessi dægrin og Samtök atvinnurekenda á Suðurnesjum boðað til opins borgarafundar í Stapa um atvinnumál. Fundurinn verður þann 7. október.