Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar stofnað
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. var formlega stofnað í húsakynnum Kaffitárs í Reykjanesbæ nú í dag, í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 26. sept. sl. Formaður félagsins er Magnús Gunnarsson en aðrir í stjórn eru Stefán Þórarinsson og Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Varamenn eru Hildur Árnadóttir, Helga Sigrún Harðardóttir og Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri í Sandgerði.
Félagið sem lýtur forræði forsætisráðherra, mun leiða þróun og umbreytingu á varnarsvæði því á Keflavíkurflugvelli sem koma á í arbær, borgaraleg not. Í því felst m.a. nauðsynleg undirbúningsvinna, s.s. úttekt á svæðinu og á þróunar- og vaxtarmöguleikum sem í því felast og samráð við aðila sem þar hafa hagsmuna að gæta. Þá mun félagið á grundvelli þjónustusamninga við ríkið annast rekstur, umsjón og umsýslu tiltekinna eigna íslenska ríkisins á svæðinu, þ.m.t. umsjón með sölu og útleigu eigna, hreinsunsvæða og eftir atvikum niðurrifi mannvirkja, sem og önnur skyld starfsemi.
Geir Haarde sagðist ánægður með hvernig gengið hafi að stofna félagið og sagði samstarf við Suðurnesjamenn hafa verið gott. Nú væri kominn tími til að hefjast handa og það væri ljóst að mörg tækifæri biðu á Keflavíkurflugvelli. „Það eru mikilvægt að koma þessum eignum í arvænleg not og það verkefni býður nýstofnaðs félags“, sagði Geir. Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, sagði mikilvægt að koma eignum á Keflavíkurflugvelli í borgaraleg not en svæðinu væri skipt í þrennt. Í fyrsta lagi svæði sem nýstofnað Þróunarfélag mun hafa yfirumsjón með, því næst flugbrautir og tengd starfsemi og því næst öryggissvæði en það mun verða notað af Bandaríkjamönnum og jafnvel ríkjum Nato fyrir heræfingar. Árni M. Mathitesen, fjármálaráðherra, var þriðji ráðherra á þessum stofnfundi. Hann sagði þetta vera sérstakt verkefni sem biði nýja félagsins en mörg tækifæri leyndust á Keflavíkurflugvelli.
Árni Sigfússon, einn þriggja stjórnarmanna í félaginu, sagði fyrstu verkefnin án efa vera að verja og hreinsa svæðið og síðan að skoða mörg tækifæri sem biðu. Eitt stærsta málið væri hvernig ætti að skipuleggja íbúðabyggðina á Vellinum. Meðal hugmynda sem hafa verið ræddar nú þegar er háskólaþorp.
Magnús Gunnarsson, formaður stjórnar sagði huga þyrfti að mengunarmálum, niðurrifi og finna arbær verkefni sem væru án efa mörg enda tækifærin til staðar á svæði eins og Keflavíkurflugvellli. „Þetta er mjög verðmætt svæði en við þurfum að passa jafnvægið og finna svæðinu réttan farveg“.
Efri mynd: Hin nýskipaða stjórn og varastjórn Þróunarfélagins: Sigurður Valur Ásbjarnarson, Hildur Árnadóttir, Magnús Gunnarsson, Helga Sigrún Harðardóttir, Stefán Þórarinsson og Árni Sigfússon.
Neðri mynd: Frá stofnfundi Þróunarfélagsins í morgun.
Vf-myndir: Páll Ketilsson