Fimmtudagur 16. janúar 2003 kl. 09:22
Þrjú ungmenni handtekin vegna innbrots

Lögreglunni í Reykjanesbæ var tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir við Dagdvöl aldraðra á Suðurgötu í morgun. Stuttu síðar handtók lögreglan þrjá pilta í bíl sem þóttu nokkuð grunsamlegir og játuðu þeir brot sín. Bentu þeir lögreglunni á hvar þeir höfðu falið þýfið og fannst það fyrir ofan Eyjabyggðina en um var að ræða stórt sjónvarp, myndbandstæki og ryksugu. Drengirnir sem eru 17, 18 og 19 ára gista nú fangageymslur lögreglu en rannsóknarlögreglan vinnur að málinu. Skúli Jónsson varðstjóri sagði í samtali við Víkurfréttir að fyrir utan þetta hefði fátt fréttnæmt gerst. "Það er nú alltaf mikill erill hjá lögreglunni í allskyns hlutum þó þeir séu nú ekki beint fréttnæmir. Við þurfum til dæmis að standa í því að birta fólki dóma ef það borgar ekki sektir sínar og því um líkt. Það er því alltaf nóg að gera hjá lögreglunni".