Þrjú umferðarslys um helgina
Síðustu dagar hafa verið fremur rólegir að sögn Karls Hermannsonar, aðstoðaryfirlögreglumanns í Keflavík en hún var því miður ekki alveg laus við óhöpp.
Bílvelta var á Grindavíkurvegi við Seltjörn um miðnætti sl. föstudagskvöld. Farþegi kvartaði undan eymslum í hálsi og var fluttur í læknisskoðun. Stuttu síðar var tilkynnt um umferðarslys á Njarðarbraut í Njarðvík. Þar hafði bifreið verið ekið suður Njarðarbraut og ofaní skurð sem hafði verið grafinn þvert yfir veginn. Ökumaður var einn í bílnum og tók ekki eftir lokuninni á veginum, sem varð að teljast allgóð. Ökumaðurinn sem var í belti, slasaðist lítillega.
Klukkustund síðar var tilkynnt um umferðarslys á Reykjanesbraut. Þar hafði verið ekið á ljósastaur en engin slys urðu á fólki og litlar skemmdir á bifreiðinni. Ljósastaurinn var talsvert
skemmdur. Þrír voru teknir fyrir meinta ölvun við akstur um helgina og einn fyrir að aka sviptur ökuleyfi.