Þrjú íslensk þjófagengi upprætt
Auðgunarbrotum á Suðurnesjum fjölgaði nokkuð milli áranna 2008 og 2009. Fjölgun þjófnaða er þar áberandi og nærtækasta sky´ringin á þessari þróun er aukið atvinnuleysi á Suðurnesjum og slæmt efnahagsástand í landinu almennt.
Lögreglan hefur brugðist við þessari brotastarfsemi með sérstöku eftirliti sem skilaði þeim árangri á haustmánuðum í fyrra, að þrjú þjófagengi voru upprætt. Þau voru öll skipuð Íslendingum.