Fréttir

Þrjú hjartatilfelli á þremur dögum
Mánudagur 14. október 2002 kl. 17:12

Þrjú hjartatilfelli á þremur dögum

-“Mjög óvanalegt", segir Björn Ingi Knútsson, flugvallarstjóri

Þrjár breiðþotur, Boeing 747 hafa lent síðustu þrjá daga á Keflavíkurflugvelli með veika farþega sem hafa verið sendir á sjúkrahús hér á landi.Vél frá United Airlines lenti með veikan farþega sl. laugardag en hún var á leið frá Evrópu vestur um haf. Í gær lenti önnur vél frá sama félagi með svipað tilfelli þar sem farþegi var færður frá borði til aðhlynningar á sjúkrahúsi hér. Þriðja vélin lenti í dag, frá flugfélaginu AlItalia en hún var á leiðinni frá Milanó til til Boston í Bandaríkjunum.
“Þetta er mjög sjaldgæft en sýnir jafnframt hvað það er mikið atriði að vera með góðan flugvöll sem getur tekið við öllum flugvélum því í þessum tilvikum voru þetta allt breiðþotur", sagði Björn Ingi Knútsson, flugvallarstjóri.

Í öllum þessum tilvikum var um stutt stopp að ræða hjá flugvélunum. Einungis var sjúklingi hleypt frá borði og vélarnar héldu áfram sinni leið.
Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar