Þrjú handtekin við innbrot í Vogunum
Tveir karlar og ein kona eru í haldi lögreglunnar í Keflavík eftir að þau voru staðin að innbroti í hús í Vogunum á þriðja tímanum í nótt. Við leit í bifreið sem þau voru á fannst þýfi úr fleiri innbrotum og er nú rannsakað hvort fólkið eigi aðild að innbrotum í Grindavík og Keflavík. Þá er talið hugsanlegt að þau tengist bílþjófnaði á Akureyri. Fólkið hefur áður komið við sögu lögreglu bæði á Suðurnesjum og annars staðar á landinu.
Mynd úr safni