Þrjú fíkniefnamál í Keflavík
Þrjú fíkniefnamál komu upp í Keflavík í gærkvöldi og nótt samkvæmt upplýsingum lögreglu. Á ellefta tímanum í gærkvöldi stöðvuðu lögreglumenn bifreið á Njarðarbraut vegna gruns um fíkniefnamisferli. Auk ökumanns voru tveir farþegar í bílnum, að sögn Morgunblaðsins.
Var fólkið handtekið fært á lögreglustöð. Við leit í bifreiðinni fundust um 3 grömm af amfetamíni í þremur pakkningum. Viðurkenndu tveir aðilanna að eiga fíkniefnin. Þeim var sleppt að aðgerðum loknum, að því er fram kemur á vef lögreglunnar.
Rétt fyrir klukkan 23 var annar bíll stöðvaður á Aðalgötu vegna gruns um fíkniefnamisferli ökumanns sem var einn í bifreiðinni. Var hann handtekinn og færður á lögreglustöð. Við leit í bifreiðinni fannst um 1 gramm af amfetamíni auk tækja til fíkniefnaneyslu. Viðurkenndi ökumaður að eiga fíkniefnin og var honum sleppt að loknum aðgerðum.
Um tvöleytið í nótt voru svo þrír karlmenn um tvítugt handteknir. Tveir þeirra voru með um gramm af fíkniefnum á sér, en talið er að um amfetamín hafi verið að ræða. Í kjölfarið var gerð húsleit, en ekkert af efnum fannst við hana. Mönnunum var sleppt og málið telst upplýst.