Þrjú fíkniefnamál á sólarhring
Eins og við greindum frá í morgunn komu tvö fíkniefnamál til kasta Lögreglunnar í Keflavík með stuttu millibili aðfaranótt fimmtudags. Í gærkveldi voru svo tveir karlmenn, 18 og 24 ára handteknir í Reykjanesbæ vegna gruns um vörslu og neyslu fíkniefna. Við leit á öðrum þeirra fannst um 7 grömm af meintu amfetamíni. Við leit í bifreið sem þeir voru á fundust síðan áhöld til hassneyslu. Mennirnir voru látnir lausir eftir yfirheyrslu.