Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þrjú af Suðurnesjum í ungmennaráð Menntamálastofnunar
Berglín er lengst til vinstri í annarri röð, Jón Ragnar er næstlengst til hægri í sömu röð en Júlíus Viggó er í miðjunni í þriðju röð á myndinni.
Þriðjudagur 29. nóvember 2016 kl. 14:15

Þrjú af Suðurnesjum í ungmennaráð Menntamálastofnunar

Þrjú ungmenni af Suðurnesjum voru skipuð í nýstofnað ungmennaráð Menntamálastofnunar. Það eru þau Berglín Sólbrá Bergsdóttir og Jón Ragnar Magnússon úr Reykjanesbæ og Júlíus Viggó Ólafsson úr Sandgerði. Berglín og Jón Ragnar voru tilnefnd af ungmennaráði Sambands íslenskra sveitafélaga og Júlíus af SAMFÉS.

Ráðið er skipað ungmennum á aldrinum 14-18 ára, alls staðar að af landinu, og verða þeir stofnuninni innan innan handar með ráðgjöf um málefni og verkefni sem varða börn og ungmenni. Ungmennin verða m.a. ráðgefandi um framtíðarsýn í þeim málum sem varða þeirra aldursflokk, eins og t.d. útgáfu námsefnis, námsmat, innritun og fleira.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Einnig verða þau starfsfólki Menntamálastofnunar innan handar í einstökum verkefnum, ef tími og aðstæður ráðgjafa leyfa, sitja fundi, málþing eða ráðstefnur á vegum Menntamálastofnunar, halda erindi á ráðstefnum, skrifa greinar í blöð og funda með ráðamönnum, svo nokkuð sé nefnt.

Alls eru 22 ungmenni í ráðinu, 12 stúlkur og 10 strákar, og voru þau tilnefnd af samstarfsaðilum Menntamálastofnunar í kjölfar samráðsfundar í vor með fulltrúum úr ýmsum starfandi ungmennaráðum. Í framhaldi af þeim fundi óskaði Menntamálastofnun eftir tilnefningum frá þessum sömu aðilum (Barnaheillum, SAFT, Samfés, Unicef, umboðsmanni barna, UMFÍ og Sambandi íslenskra sveitarfélaga) og í framhaldinu hefur ráðið nú verið sett á fót.