Bygg
Bygg

Fréttir

Þrjátíu og sex útskrifaðir frá Háskólanum á Akureyri
Frá útskriftinni í Kirkjulundi, allur útskriftarhópurinn með forráðamönnum HA og MSS.
Föstudagur 28. júní 2013 kl. 07:00

Þrjátíu og sex útskrifaðir frá Háskólanum á Akureyri

Hafa stundað nám sitt í gegnum Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.

Hafa stundað nám sitt í gegnum Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.

Glæsileg Háskólahátíð var haldin þann 17. júní sl. í Kirkjulundi fyrir útskriftarfjarnemendur Háskólans á Akureyri á Suðurnesjum sem hafa stundað nám sitt í gegnum Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Alls voru 36 nemendur útskrifaðir, þar af 7 af viðskiptabraut, 3 af kennarabraut, 3 iðjuþjálfarar og 23 hjúkrunarfræðingar. Í þessum hópi voru tveir karlmenn og 34 konur sem kláruðu nám sitt á fjórum til sex árum og var meðalaldur nemenda 38 ár.  Er þetta í tíunda skiptið sem fjarnemendur HA sem hafa stundað nám sitt í gegnum MSS útskrifast.  Nokkrir aðilar fluttu ávörp  við þessa hátíðlegu stund og kom lektor viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri inn á að mikill meirihluti nemenda háskólans væru konur og mjög stór hluti sem stundar nám við Háskólann væri að gera það í fjarnámi.

Í ávarpi forstöðumanns MSS kom fram að aðsókn að fjarnáminu hefði aldrei verið meiri og ánægjulegt að íbúar Suðurnesja séu að bæta við þekkingu sína. Það skilaði sér hins vegar ekki í stuðningi samfélagsins til fjarnámsins en að vonandi myndu bakhjarlarnir eins og ráðuneytið, SSS og Háskólinn endurskoða stuðning sinn.

Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar talaði um mikilvægi þess að fjölga háskólamenntuðum einstaklingum í bæjarfélaginu. Fulltrúi nemenda Una Kristín Stefánsdóttir sagði frá upplifun nemenda við að stunda fjarnámið og að margir væru ekki að útskrifast með háskólapróf ef þessi möguleiki væri ekki til staðar. Við upphaf og lok athafnar söng Jana María Guðmundsdóttir 3 lög við undirleik Arnórs Vilbergssonar.