Þrjátíu ný störf í örþörungaverksmiðju
- fjárfestingarsamningur undirritaður kl. 10
Líftæknifyrirtækið Algalíf byggir 7.500 fermetra örþörungaverksmiðju á Ásbrú og verður hún fullkláruð um mitt næsta ár. Skrifað verður undir fjárfestingarsamning vegna verkefnisins milli Algalíf og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins nú kl. 10.
Samningurinn verður undirritaður í húsnæði fyrirtækisins að Bogatröð 10 en þar er Algalíf að koma sér fyrir í 1.500 fermetra húsnæði. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra mun skrifa undir fjárfestingasamning fyrir hönd ráðuneytisins.
Algalíf Iceland ehf. var stofnað í ágúst 2012 og er í eigu norska félagsins NutraQ A/S.
Áætlað er að uppbygging örþörungaverksmiðjunnar muni kosta um tvo milljarða króna (17,6 milljónir Bandaríkjadala) og hún verði fullkláruð um mitt ár 2015.
Nú starfa átta manns hjá fyrirtækinu. Starfsmönnum verður fjölgað í febrúar og verða um 30 þegar verksmiðjan verður komin í fullan gang.
Í versksmiðjunni verða ræktaðir örþörungar sem nefnast Haematococcus Pluvialis, en úr þeim er unnið virka efnið Astaxanthin. Það er sterkt andoxunarefni sem notað er í fæðubótarefni og vítamínblöndur, auk þess að vera neytt í hylkjaformi. Mikill og vaxandi markaður er fyrir efnið og heimsframleiðslan núna annar hvergi nærri eftirspurn.
Skilyrði eru sérstaklega hagstæð á Íslandi til hátækniframleiðslu af þessu tagi, en nálægð við alþjóðaflugvöll, hreint vatn, örugg afhending orku og hæft starfsfólk eru meðal þeirra þátta sem réðu staðarvalinu.
Verksmiðjan verður sú fullkomnasta sinnar gerðar í heiminum. Þörungarnir verða ræktaðir í lokuðu kerfi þar sem næringu, hita og birtumagni verður stýrt nákvæmlega.
Algalíf nýtir nú 1.500 m² húsnæði sem þegar er til á Ásbrú, fyrrum varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll, en mun byggja við það um 6.000 m². Gengið hefur verið frá öllum samningum við KADECO, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. Samtals verða verksmiðja og rannsóknarstofur á 7.500 m² þegar uppbyggingunni verður lokið.
Framleiðslan hefst strax í ár en fullum afköstum verður náð árið 2016.
Verksmiðja Algalífs mun nota 5 megavött af raforku til framleiðslunnar. Þegar hefur verið gengið frá samningi við HS orku um raforkukaup til 25 ára.
Framkvæmdastjóri Algalífs á Íslandi er Skarphéðinn Orri Björnsson. Hann hefur um árabil unnið í lyfjageiranum, meðal annars hjá Actavis og einnig sem sérfræðingur og framkvæmdastjóri hjá Sameinuðu þjóðunum vegna uppbyggingar á nútíma lyfjaverksmiðjum í Afríku.