Föstudagur 20. október 2006 kl. 09:07
Þrjátíu hassmolar fundust við húsleit
Lögreglan í Keflavík handtók í gærkvöldi mann í Sandgerði sem grunaður var um fíkniefnamisferli. Við húsleit hjá manninum fundust 30 hassmolar og 23,5 lítrar af landa í tveggja og hálfs liters flöskum.
Manninum var sleppt að lokinni yfirheyrslu segir í vefdagbók lögreglunnar í Keflavík.