Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fimmtudagur 13. apríl 2000 kl. 17:20

Þrjár listgreinar í eitt

Sigurður Þórir, listmálari í Reykjavík, opnar sýningu í Svarta pakkhúsinu, húsi myndlistarmanna í Reykjanesbæ að Hafnargötu 2 í Keflavík, laugardaginn 15. apríl kl. 14. Sýningin stendur fram á annan páskadag og verður opin klukkan 16 til 18 á virkum dögum og 14 til 18 á laugar- og helgidögum. Á sýningunni verða teikningar Sigurðar við ljóð Þórs Stefánssonar í bókinni Ljóð út í veður og vind. Bókin kom út í Reykjavík haustið 1998. Á sýningunni koma frummyndirnar í fyrsta sinn fyrir almenningssjónir ásamt vatnslitamyndum og olíumálverkum sem Sigurður hefur unnið út frá teikningum. Alls eru um 30 verk á sýningunni. Það er mikill fengur fyrir Suðurnesjamenn að þessi landsþekkti listamaður skuli sýna verk sín í Reykjanesbæ en hann velur sýningunni stað í heimabæ skáldsins. Á fyrsta degi sýningarinnar klukkan 16 les Þór nokkur ljóð úr bókinni Ljóð út í veður og vind og Guðmundur Hermannsson frumflytur nokkur lög sín við ljóð Þórs úr sömu bók. Lokadag sýningarinnar verður dagskráin endurtekin á sama tíma. Hér er því á ferðinni listviðburður þar sem þrjár listgreinar leggjast á eitt um að gera sýninguna eftirminnilega. Í tilefni af sýningunni eru gefin út póstkort með teikningum og ljóðum.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024