Þrjár lendingar með veika farþega
Þrjár flugvélar hafa lent á Keflavíkurflugvelli á undanförnum dögum með veika farþega. Ein þeirra, sem var á leið frá Berlín til New York, lenti í gær með veika konu.
Í fyrradag lenti önnur vél, á leið frá Abu Dabi til New York, vegna konu sem veikst hafði hastarlega um borð. Þriðja flugvélin kom frá Minneapolis á laugardag og um borð í henni var aldraður maður sem átti í öndunarerfiðleikum.
Allir farþegarnir þrír voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og einn þaðan á Landspítalann.