Þrír útlendingar stöðvaðir í Leifsstöð

Jóhann R.Benediktsson sýslumaður segir að ekki leiki grunur á mansali en fólkið hafi villt á sér heimildir og brotið gegn útlendingalögum með því að koma ólöglega inn í landið og ætla sér áfram héðan.
Þá hafi Kínverjarnir sagt við yfirheyrslu að bandarískum fylgdarmanni þeirra hafi verið greidd umtalsverð fjárhæð fyrir að útvega þeim ferðaskjöl og koma þeim til Bandaríkjanna.
Héraðsdómur Reykjanes úrskurðaði Bandaríkjamanninn í dag í gæsluvarðhald til 22.júlí og Kínverjana tvo til 15.júlí. Ríkisútvarpið greindi frá.