Þrír teknir vegna fíkniefnasölu
Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum handtekið þrjá einstaklinga vegna gruns um vörslur og sölu fíkniefna. Einn þeirra var handtekinn aðfararnótt sunnudags. Viðkomandi hafði í fórum sínum sex smelluláspoka með hvítu efni. Meintur viðskiptavinur var með hvítt efni í poka innan klæða.
Þá var karlmaður, sem lögregla hafði tal af með átta pakkningar af kannabisefni í vasanum og játaði hann sölu fíkniefna.
Ökumaður sem lögregla tók úr umferð reyndist svo vera með talsvert magn af ætluðu amfetamíni í bifreiðinni, bæði í smelluláspokum og öðrum ílátum. Einnig vog og sölubók. Viðkomandi viðurkenndi dreifingu og sölu fíkniefna.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.