Þrír sviptir ökuréttindum
Lögreglan á Suðurnesjum handtók um helgina ökumann vegna gruns um að hann æki undir áhrifum fíkniefna. Hann neitaði hefðbundnum sýnatökum á lögreglustöð og var því sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Lögreglumenn fóru í húsleit á heimili hans að fengnum dómsúrskurði héraðsdóms Reykjaness. Þar fundust leifar af kannabisefnum og tæki og tól til fíkniefnaneyslu.
Jafnframt svipti lögreglan tvo ökumenn til viðbótar ökuréttindum til bráðabirgða eftir að þeir höfðu orðið uppvísir að ölvunarakstri í umdæminu