Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þrír með fölsuð vegabréf
Föstudagur 30. mars 2012 kl. 12:34

Þrír með fölsuð vegabréf

Þrír einstaklingar með fölsuð vegabréf voru stöðvaðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í fyrradag, miðvikudaginn 28. mars.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Karl og kona sem ferðuðust saman framvísuðu ítölskum vegabréfum við landamæraeftirlitið í flugstöðinni á leið sinni í flug til Kanada. Þau kveðast bæði vera frá Íran. Við skoðun vegabréfanna kom í ljós að skipt hefur verið um mynd í þeim báðum. Konan og maðurinn hafa verið kærð fyrir skjalafals.


Þá voru höfð afskipti í komusal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar af karlmanni er framvísaði norsku vegabréfi annars manns. Maðurinn hafði verið að koma með flugi frá Noregi en kveðst vera frá Eþíópíu. Í fórum hans fannst flugmiði með flugi til Kanada í dag, þann 30.03.2012. Maðurinn hefur verið kærður fyrir misnotkun skjals.


Málin eru nú til rannsóknar.


Það sem af er þessu ári hafa sex fölsunarmál komið upp í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Í janúar var maður stöðvaður með senegalskt vegabréf annars manns. Tveimur dögum síðar var maður stöðvaður með belgískt kennivottorð annars manns. Og í febrúarmánuði var maður stöðvaður með grunnfalsað franskt kennivottorð.


Á sama tíma í fyrra, árið 2011, höfðu þrír eintaklingar með fölsuð skilríki verið stöðvaðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Allt árið 2011 komu 33 fölsunarmál upp í flugstöðinni.


Undanfarin ár hafa flest fölsunarmál í Flugstöð Leifs Eiríkssonar komið upp í tengslum við flug til Kanada. Síðastliðinn miðvikudag var fyrsta flugið til Kanada þetta árið.