Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þrír lykilstarfsmenn hætta með Jóhanni
Miðvikudagur 24. september 2008 kl. 17:46

Þrír lykilstarfsmenn hætta með Jóhanni



Þrír lykilstarfsmenn lögregluembættisins á Suðurnesjum hafa ákveðið að segja upp störfum ásamt Jóhanni R. Benediktssyni, lögreglustjóra. Það eru Eyjólfur Kristjánsson staðgengill hans, Guðni Geir Jónsson fjármálastjóri embættisins og Ásgeir J. Ásgeirsson starfsmannastjóri. Þetta var tilkynnt á starfsmannafundi sem Jóhann boðaði nú síðdegis og stendur yfir í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju. Fjömennt er á fundinum og má glögglega greina að starfsmönnum embættisins er nokkuð niðri fyrir. Jóhann hefur óskað eftir því  að hættta þann 1. október.



Rétt fyrir fundinn sendi Jóhann frá sér svohljóðandi fréttatilkynningu:

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Jóhann R. Benediktsson, lögreglu- og tollstjórinn á Suðurnesjum, hefur í dag óskað eftir því við dómsmálaráðuneytið að fá að hætta störfum þann 1. október næstkomandi.  Jóhann tilkynnti samstarfsfólki sínu þetta á starfsmannafundi í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju í dag. Þá tilkynnti Jóhann einnig að á undanförnum vikum hefðu þrír lykilstarfsmenn hjá embættinu einnig óskað eftir því að hverfa frá störfum frá sama tíma. Það eru Eyjólfur Kristjánsson staðgengill hans, Guðni Geir Jónsson fjármálastjóri embættisins og Ásgeir J. Ásgeirsson starfsmannastjóri þess.



Aðdragandi málsins er langur, en ákveðin kaflaskipti urðu í mars sl. þegar dómsmálaráðherra tilkynnti að hann hygðist skipta embættinu upp. Sú ákvörðun ráðherra var fyrirvaralaus og án nokkurs samráðs við fag- og stéttarfélög eða yfirstjórn  embættisins. Ákvörðun ráðherra og aðdragandi hennar mætti mikilli gagnrýni bæði meðal starfsmanna embættisins og annarra og tilkynnti Jóhann að hann myndi hann hætta störfum ef af uppskiptingunni yrði. Frumvarp til breytinga á tollalögum sem fól í sér fyrrnefnda uppskiptingu var stöðvað meðförum Alþingis.



Samskipti ráðuneytisins og embættisins hafa frá þeim tíma verið afar stirð. Embættið hefur á undanförnum mánuðum lagt sig fram við að vinna markvisst að lausn deilunnar og mætt kröfum ráðuneytisins um fjárhagslega aðgreiningu tollgæslu, lögreglu og öryggisdeildar meðan fagleg yfirstjórn þeirra yrði óbreytt. Sú vinna embættisins hefur ekki fengið hljómgrunn innan ráðuneytisins.



Ítrekaðar tilraunir yfirstjórnar embættisins til að bæta samskipti þess og ráðuneytisins hafa ekki borið árangur og er nú svo komið að algjör trúnaðarbrestur er á milli aðila að mati embættisins. Við þær aðstæður er ljóst að embættið kemur ekki til með að njóta sannmælis og sanngjarnrar meðferðar innan ráðuneytisins. Því metur lögreglu- og tollstjóri stöðuna þannig að nýir stjórnendur, þóknanlegir ráðuneytinu, verði að koma að embættinu. Þannig verði framtíð starfsmanna og starfseminnar tryggð.



Með bréfi dagsettu 8. september sl. var lögreglu- og tollstjóra tilkynnt sú ákvörðun dómsmálaráðherra að staða hans yrði auglýst er skipunartími hans rennur út þann 31. mars næstkomandi. Forsendur þeirrar ákvörðunar voru fyrst kynntar í fjölmiðlum um nýliðna helgi. Þær skýringar  eru  léttvægar og  dæma sig sjálfar.



Lögreglu- og tollstjóri óskar starfsmönnum og embættinu alls hins besta í framtíðinni og skorar á ráðamenn þjóðarinnar að tryggja að það öfluga og giftusamlega starf sem þar hefur verið unnið fái þann stuðning og skilning sem það verðskuldar. Alvarleg staða löggæslunnar í landinu er verulegt áhyggjuefni fyrir samfélagið allt og róttækra aðgerða þörf ef ekki á illa að fara.



 



Reykjanesbæ 24. september 2008



Jóhann R. Benediktsson lögreglu- og tollstjóri





VF-mynd/elg. Frá fundinum nú áðan.