Þrír listar í boði í Vogum
Þrír framboðslistar verða í boði fyrir kjósendur í Sveitarfélaginu Vogum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 14. maí nk. Það eru D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra, E-listi Framboðsfélags E-listans og L-listi Lista fólksins.
Kjörskrá í Sveitarfélaginu Vogum mun liggja frammi frá 23. apríl nk. Athugasemdir vegna kjörskrár má gera til sveitarstjórnar fram á kjördag. Viðmiðunardagur kjörskrár er 6. apríl 2022.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				