Bygg
Bygg

Fréttir

Fimmtudagur 2. janúar 2003 kl. 11:47

Þrír létust í umferðarslysum á Reykjanesi árið 2002

Á árinu 2002 létust 3 einstaklingar í fjórum umferðarslysum á Suðurnesjum, en alls létust á landinu öllu 29 manns í 22 umferðarslysum. 14 karlar hafa látist, 10 konur og 5 börn.
Flest slysin urðu á fyrstu þremur mánuðum ársins eða 9, þar sem níu manns létust. Sex slys urðu frá apríl til júní og létust 9 manns í þeim, 5 slys urðu frá júlí til septemberloka þar sem 7 létust og tvö slys hafa orðið á síðustu þremur mánuðum ársins þar sem 4 létust. 27 manns létust í slysum í dreifbýli og 2 í þéttbýli. Í báðum þeim tilvikum var ekið á staur. Af þeim sem létust voru 12 ökumenn bifreiða, 16 farþegar bifreiða og einn gangandi. Tveir erlendir ríkisborgarar létust í slysum hér á landi á árinu.

Slysin sem um ræðir voru sem hér segir:
12 í árekstrum, 8 í útafakstri, 4 létust í bílum sem fuku út af vegi, 2 þegar ekið var á staur, 2 í bílveltum og 1 varð fyrir bifreið.

Aldursskipting látinna:

0 – 6 ára 2
7 – 14 ára 3
15 – 16 ára 0
17 – 20 ára 1
21 – 24 ára 3
25 – 64 ára 14
65 ára og eldri 9

Fjöldi banaslysa og látinna eftir kjördæmum:

Reykjavík 1 slys 1 látinn
Reykjanes 3 slys 3 látnir
Suðurland 6 slys 8 látnir
Austurland 3 slys 3 látnir
Norðurl. eystra 2 slys 2 látnir
Norðurl. vestra 2 slys 5 látnir
Vestfirðir 2 slys 4 látnir
Vesturland 3 slys 3 látnir
Bílakjarninn
Bílakjarninn