Þrír í vímu handteknir og sviptir
Lögreglan á Suðurnesjum handtók í fyrradag ökumann sem reyndist vera sviptur ökuréttindum og var að auki grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann viðurkenndi neyslu á kannabis og amfetamíni.
Deginum áður hafði lögregla handtekið annan ökumann, sem einnig hafði verið sviptur ökuréttindum og var grunaður um fíkniefnaakstur. Hann viðurkenndi neyslu á fimm tegundum fíkniefna. Þriðji ökumaðurinn var einnig stöðvaður og handtekinn. Hann var sviptur og var rökstuddur grunur um neyslu hans á fíkniefnum.
Mennirnir voru látnir lausir að loknum sýna- og skýrslutökum.