Þrír í gæsluvarðhald úr dópskútu í Sandgerði
Mikið magn fíkniefna fannst um borð í skútu undan suðurströnd Íslands um helgina. Tveir voru handteknir um borð í skútunni og sá þriðji í landi. Þeir hafa allir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 4. júlí á grundvelli rannsóknahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Skútan kom til hafnar í Sandgerði á laugardagsmorgun og var mikil lögregluaðgerð í höfninni, eins og greint er frá í þessari frétt hér.
Við aðgerðirnar naut embættið aðstoðar Landhelgisgæslunnar, tollgæslu, lögreglunnar á Suðurnesjum og sérsveitar ríkislögreglustjóra.
Lögreglan segir að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu.