Þriðjudagur 7. maí 2002 kl. 12:34
Þrír háskólar með fjarnám hjá MSS í haust

Fjarnám á háskólastigi verður hjá MSS á haustmisseri 2002 í samvinnu við Háskólann á Akureyri, Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands.Um sextíu nemendur stunda nú fjarnám hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, MSS. Fjarnám er valkostur fyrir nemendur sem hvorki hafa aðstæður til hefðbundinnar skólagöngu né möguleika á að stunda háskólanám með vinnu. Næsta haust gefst kostur á að stunda fjarnám í auðlindadeild og kennaradeild í samvinnu við Háskólann á Akureyri hjá MSS.Umsóknarfrestur rennur út 20. maí. Boðið verður upp á fjarnám í fiskeldi, líftækni, sjávarútvegsfræði, umhverfisfræði, leikskólafræði og nútímafræði ef næg þátttaka fæst. Einnig býður Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík námsefni fyrstu þriggja anna (45 einingar) í fjarnámi. Umsóknarfrestur rennur út 5. júní. Um er að ræða námsefni af kjörsviði notendahugbúnaðar. Nemendur innritast í kerfisfræði en til að ljúka kerfisfræðiprófi þurfa nemendur að koma í hefðbundið staðarnám á 4. önn. Nemendur geta ákveðið síðar að ljúka BS gráðu (90 einingar) í hefðbundnu námi. Fjarnám HR er tekið á hálfum hraða; tvö námskeið á haustönn og tvö námskeið á vorönn ásamt verklegu námskeiði á vorönn sem krefst þess að nemendur vinni verkefni í skólanum í þrjár vikur. Námsefni og námskröfur í fjarnámi er nákvæmlega það sama og í staðarnámi. Kennslumiðstöð Háskóla Íslands býður einnig námskeið í fjarnámi ef koma fram óskir þar um og nægjanlega mikill fjöldi nemenda.
Áskilinn er réttur til fjöldatakmarkana í auðlindadeild HA vegna takmarkaðrar verklegrar aðstöðu. Fjarnám HA fer fram á netinu í sérstöku vinnuumhverfi og í fjarfundum sem fara fram í samstarfi við MSS. Nemendur í auðlindadeild þurfa að mæta í staðbundið nám í a.m.k. 2 vikur á hverri önn og eru ekki endilega bundnir af fjarfundum. Í leikskólafræði þurfa nemendur að mæta í tveggja vikna staðbundið nám á sumarmisseri. Fjarnám HR fer fram í sérhönnuðu fjarnámsumhverfi sem deildin hefur þróað á undanförnum árum og byggir nær eingöngu á internettækni.
Kynning á náminu í auðlindadeild HA verður hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, mánudaginn 13. maí kl. 16:00 að Skólavegi 1 í Keflavík og á kerfisfræðináminu hjá HR, miðvikudaginn 15. maí kl. 16:00, einnig að Skólavegi 1.
Skúli Thoroddsen, forstöðumaður MSS