Þrír dæmdir fyrir líkamsárás í Grindavík
Þrír menn, einn 18 ára og tveir 19 ára, voru dæmdir í fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir líkamsárás fyrir utan skemmtistað í Grindavík í maí í fyrra.Yngsti maðurinn hlaut 30 daga dóm en hinir 45 og 60 daga en þeir réðust á sér 10 árum eldri mann og veittu honum högg og spörk í andlit og skrokk en við það hlaut fórnarlamb þeirra sár á höfði sem sauma þurfti saman og skrámur og rispur frá höfði og niður á fætur, en auk þess brotnaði beintindur á lendarhryggjarlið.
Mennirnir voru dæmdir til að borga fórnarlambi sínu skaðabætur, tveir þeir eldri rúmar 137 þúsund hvor og sá yngri rúmar 49 þúsund. Þá voru þeir dæmdir til að borga málsvarnarlaun skipaðra verjenda sinna, alls 490 þúsund krónur, og allan annan sakarkostnað, þ.m.t. 115.000 króna þóknun réttargæslumanns brotaþola.
Dómari ákvað að fresta fullnustu fangelsisdómanna yfir mönnunum þremur um tvö ár og fellur refsingin niður að þeim tíma liðnum haldi þeir skilorðið.
Frá þessu er greint á mbl.is í dag.