Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut
Laust eftir klukkan 19.00 í gærkvöldi var tilkynnt um þriggja bifreiða árekstur á Reykjanesbraut vestan við Vogaveg. Loka þurfti Reykjanesbrautinni um tíma á meðan lögreglan var að vinna á vettvangi. Ein bifreiðin valt við áreksturinn.
Tveir voru fluttir með sjúkrabifreiðum til Reykjavíkur en ekki alvarlega slasaðir og aðrir tveir fóru sjálfir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar hjá lækni.
Bifreiðarnar voru fluttar með kranabifreið af vettvangi.