Þriggja bíla árekstur - talsvert um óhöpp
Talsvert hefur verið um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Í morgun varð þriggja bíla árekstur á gatnamótum Efstahrauns og Víkurbrautar í Reykjanesbæ. Þá varð annað óhapp þar sem ökumaður missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún hafnaði í steingarði í vegkanti og sprungu líknarbelgirnir út við áreksturinn.
Tvær bílveltur urðu svo í vikunni, önnur á Reykjanesbraut við Flugstöð Leifs Eiríkssonar og hin milli Rósaselstorg og flugstöðvarinnar. Ekki urðu alvarleg meiðsl á ökumönnum né farþegum í ofangreindum tilvikum.