Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þriðja stærsta ár Keflavíkurflugvallar frá upphafi
Svona mun flugstöðin líta út í árslok 2023 þegar austurbyggingin nýja verður full kláruð.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 1. desember 2022 kl. 11:50

Þriðja stærsta ár Keflavíkurflugvallar frá upphafi

Tuttugu og fjögur flugfélög munu fljúga með 7,8 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll á næsta ári sem verður það þriðja stærsta í sögu flugvallarins samkvæmt farþegaspá sem Isavia kynnti fyrir árið 2023 í morgun. Hálfri milljón fleiri farþegar munu því fara um flugvöllinn en 2019.

Hlutfall tengifarþega verður 27% sem er svipað og 2019 en nokkru minna en árið 2018 þegar hlutfall þeirra var tæp 40%. Flugfélögin 24 verða með áætlunarflug til og frá 80 áfangastöðum í Evrópu og Norður-Ameríku, þar af 51 allt árið. Farþegaspáin gerir ráð fyrir að tæpar 2,2 milljónir erlends ferðafólks muni koma til Íslands um Keflavíkurflugvöll á árinu 2023. Aðeins einu sinni áður hefur fleira ferðafólk komið til Íslands um Keflavíkurflugvöll á einu ári og voru það 2,3 milljónir metárið 2018.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Farþegaspá er unnin út frá upplýsingum um afgreiðslutíma sem flugfélög hafa tryggt sér og byggir á upplýsingum úr kerfum Isavia til viðbótar við fréttir af áformum flugfélaga.

VELSÆLD OG SJÁLFBÆRNI LEIÐARLJÓS

Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, kynnti uppfærða stefnu Isavia um að Keflavíkurflugvöllur sé leiðandi alþjóðaflugvöllur sem vaxi á sjálfbæran hátt og styðji við velsæld þjóðarinnar. Hann sagði flugvöllinn gera það með því að styðja við vöxt og tækifæri ferðaþjónustunnar auk þess leggja ásamt íslensku flugfélögunum grunn að þeim fjölda flugtenginga sem íslenskt efnahagslíf reiðir sig á. „Alþjóðasamtök flugvalla í Evrópu hafa gefið það út að 10% aukning í beinum flugtengingum skili um 0,5% hagvexti í viðkomandi landi og líklega eru áhrifin á Íslandi enn meiri þar sem við erum eyland,“ sagði Sveinbjörn. Hann sagði það jafnframt stefnu Isavia að hafa sjálfbærni að leiðarljósi í öllu. „Við viljum leggja okkar lóð á vogaskálarnar, annars vegar þar sem við finnum til ábyrgðar þegar kemur að þessum mikilvægu málum og hins vegar teljum við raunverulegt samkeppnisforskot og langtímavirðisauka felast í því að sinna sjálfbærni af alvöru,“ sagði Sveinbjörn.

ÁBYRG UPPBYGGING Í TAKT VIÐ FJÖLDANN

Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia, sagði hraða endurheimt farþega á árinu og farþegaspána staðfesta að ferðaþjónustan hafi náð fyrri styrk og það hvetji Isavia til að halda áfram að þróa Keflavíkurflugvöll með ábyrgum hætti. „Við höfum þegar stigið mikilvægt skref með framkvæmdum við svokallaða Austurálmu sem mun opna í áföngum frá seinni hluta næsta árs og fram að lokum 2024. Með henni bætum við alla þjónustuupplifun á flugvellinum, fyrst í lok næsta árs með nýjum og miklu rúmbetri farangursmóttökusal,“ sagði Guðmundur Daði.

Til að veita innsýn í framtíð Keflavíkurflugvallar og hvernig unnið verður að þróun hans með sjálfbærni að leiðarljósi hefur Isavia opnað vefsvæðið kefplus.is. „Það eru spennandi hlutir að gerast á Keflavíkurflugvelli sem við viljum gefa öllum tækifæri til að fylgjast með, bæði á vefsvæðinu og með merkingum á flugvellinum. Til að ná utan um öll verkefni Isavia sem snúa að þessari þróun notum við samheitið KEF+, þar sem plúsinn táknar meira rými, aukna getu og þar með enn betri þjónustu,“ segir Guðmundur Daði.