Fimmtudagur 6. janúar 2022 kl. 09:36
Þrettándagleði í Reykjanesbæ frestað
Þrettándagleði í Reykjanesbæ hefur verið frestað en fyrirhugaðir voru bílatónleikar og flugeldasýning. Möguleikar verða kannaðir á flutningi dagskrárinnar yfir á annan dag og gangi það upp verða tilkynningar þess efnis sendar út.
Flugeldasýningu í Grindavík hefur einnig verið frestað.