Þrettándagleði í Reykjanesbæ aflýst
– vegna slæmrar veðurspár. Flugeldasýning á laugardag.
	Tekin hefur verið sú ákvörðun að aflýsa fyrirhugaðri þrettándagleði í Reykjanesbæ, sem fara átti fram á morgun kl. 18:00, þar sem veðurspá er mjög slæm. Gert er ráð fyrir suðaustan 18 m/s um sexleytið og fer vindur vaxandi er líður á kvöldið. Það er því útséð um að kveikt verði í brennu eða flugeldum skotið á loft.
	
	Flugeldasýning á laugardag
	
	Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að Björgunarsveitin Suðurnes er tilbúin með glæsilega flugeldasýningu og verður hún því haldin laugardaginn 10. janúar kl. 18.00 af Berginu, líkt og á Ljósanótt. Þá er veðurspá mjög góð og haldist hún þannig gerum við ráð fyrir að fólk safnist saman á hátíðarsvæðið okkar á Bakkalág og njóti hennar.
	 


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				