Þrettán lögreglumenn fylgdu Vítisenglum til Kaupmannahafnar
Ellefu félögum Hells Angels frá Danmörku var í morgun vísað úr landi. Þeir voru stöðvaðir í Leifsstöð í gærkvöldi á leið sinni til landsins. Átta félögum dönsku samtakanna var hleypt inn í landið og gista þeir í húsnæði vélhjólasamtaka í Grindavík.Vítisenglunum ellefu var fylgt af þrettán lögreglumönnum frá lögreglunni á Keflavíkurflugvelli til Kaupmannahafnar með vél Flugleiða kl. átta í morgun.