Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þrettán bjóða sig fram hjá Framsókn
Mánudagur 23. febrúar 2009 kl. 12:42

Þrettán bjóða sig fram hjá Framsókn

Það eru 13 sem bjóða sig fram í póstkosningu félagsmanna við val í 6 efstu sætin á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi vegna alþingiskosninganna 25. apríl 2009. En frestur til að skila inn framboðum, 20. febrúar.
 
Í hópnum eru 7 konur og 6 karlar og  er yngsti frambjóðandinn er 18 ára og sá elsti er 65 ára.
 
Eftirtaldir gefa kost á sér:
1. sæti: Sigurður Ingi Jóhannsson dýralæknir, Eygló Þóra Harðardóttir alþingismaður.
1. – 2. sæti: Birgir Þórarinsson sérfr. í alþj.samskiptum, Kristinn Rúnar Hartmannsson myndlistamaður.
1. – 3. sæti: Eysteinn Jónsson bæjarfulltrúi.
2. sæti: Bryndís Gunnlaugsdóttir, lögfræðingur og form. SUF
3. – 6. sæti: Inga Þyri Kjartansdóttir, verkefnastjóri
4. sæti: Guðni Ragnarsson, bóndi Rangárþingi
5. – 6. sæti: Einar Freyr Elínarson nemi, Ýr Gísladóttir nemi og vaktstjóri, Bergrún Björnsdóttir nemi.
6. sæti: Hansína Ásta Björgvinsdóttir kennari, Ingibjörg Júlía Þorbergsdóttir viðskiptafræðingur
 
Kosið verður í póstkosningu allra flokksmanna í kjördæminu. Kjörfundur hefst 24. febrúar og honum lýkur 4. mars.
 
Miðvikudaginn 25. febrúar kl 19:59  halda framsóknarmenn í Reykjanesbæ fund með frambjóðendum þar sem Reyknesingum bíðst að koma og hlíða á kynningu þeirra og baráttumál. Fundurinn hefst kl. 19:59 og er opin öllum sem láta sig varða framtíð Íslands.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024