Þrettán beltislausir sektaðir
Þrettán ökumenn voru kærðir í umdæmi lögreglunnar í Keflavík í gærdag fyrir að vera ekki með öryggisbeltið spennt við aksturinn og tveir ökumenn voru kærðir fyrir að tala í farsíma við aksturinn án þess að nota handfrjálsan búnað. Þá var tilkynnt um eitt minniháttar umferðaróhapp í Reykjanesbæ og einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur.