Þrettán ára piltur á vespu ók á bifreið
Réttindalaus piltur er ók vespu, sem á sátu tveir piltar til viðbótar, gegn einstefnu í Keflavík um helgina endaði för sína og félaga sinna með því að aka á bifreið sem kom úr gagnstæðri átt.
Vespan sem pilturinn, sem er aðeins þrettán ára gamall ók, var án hraðatakmarka og jafnframt ótryggð. Piltarnir þrír sluppu ómeiddir svo og ökumaður bifreiðarinnar sem ekið var á. Lögreglan á Suðurnesjum tilkynnti atvikið til forráðamanna drengjanna og til barnaverndar.