Þremur kettlingum hent út úr bíl
Íbúi í Keflavík hafði samband við lögregluna á Suðurnesjum í vikunni vegna þess að bifreið hafði staðnæmst við lóðina hjá honum og þar henti ökumaður hennar út þremur litlum kettlingum. Hann ók síðan á brott og skildi þá eftir. Íbúanum tókst þegar að handsama tvær af litlu kisunum, en sú þriðja hafði þá smokrað sér í burtu.
Lögregla hafði samband við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja, sem lét sækja kettlingana. Þetta ofangreinda athæfi er brot á lögum um dýravernd og vitað hver þar var að verki. Málið er í hefðbundnum farvegi hjá lögreglu.