Fréttir

Þrefalt meiri afli í Grindavík og ný saltfiskvinnsla í bígerð
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 2. júlí 2025 kl. 10:22

Þrefalt meiri afli í Grindavík og ný saltfiskvinnsla í bígerð

Þrefalt meiri afla var landað í Grindavíkurhöfn fyrstu sex mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra. 54 bátar og skip lönduðu í 612 löndunum í Grindavíkurhöfn á tímabilinu.

Alls var 14.924 tonnum landað í Grindavíkurhöfn á fyrstu sex mánuðum ársins. Sé aflinn borinn saman við fyrri ár kemur í ljós að hann er 67% af afla fyrri hluta árs 2022 og 70% af afla fyrri hluta árs 2023.

Fleiri jákvæðar fréttir eru af grindvískum sjávarútvegi en Ganti, sjávarútvegsfyrirtæki sem varð til síðasta vetur við skiptingu Þorbjarnar í þrjú félög, áformar að hefja saltfiskvinnslu í Grindavík á næstunni.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

„Um er að ræða jákvæð tíðindi fyrir bæjarfélagið og bendir til frekari uppbyggingar í sjávarútvegi í bænum,“ segir á heimasíðu Grindavíkur.