Bygg
Bygg

Fréttir

Mánudagur 26. febrúar 2001 kl. 18:00

Þrætulandið tekið eignarnámi

Langvarandi samningaviðræður yfirvalda í Reykjanesbæ við landeigendur Bergsins við Grófina, hafa engan árangur borið. Bæjarstjóra hefur verið falið að vinna frekar í málinu, með það að markmiði að taka það eignarnámi undir íbúðabyggð á Berginu, samkvæmt tilboði sem gert var 25. október 2000.„Við höfum reynt að semja við eigendur landsspildu á Berginu, sem afmarkast af smábátahöfninni og tekur rúmlega yfir núverandi íbúð og þá er næsta skref að taka landið eignarnámi. Eignarnám er alþekkt fyrirbæri og það er síður en svo verið að níðast á fólkinu“, segir Ellert Eiríksson bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Bílakjarninn
Bílakjarninn