Fréttir

Þorsteinn áfram sveitarstjóri Skútustaðahrepps
Þorsteinn Gunnarsson og Helgi Héðinsson. Mynd af vef Skútustaðahrepps.
Fimmtudagur 23. ágúst 2018 kl. 14:48

Þorsteinn áfram sveitarstjóri Skútustaðahrepps

Gengið hefur verið frá ráðningu Þorsteins Gunnarssonar sem sveitarstjóra Skútustaðahrepps út þetta kjörtímabil. Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins. Þorsteinn, sem búið hefur í Grindavík í mörg ár, var meðal umsækjenda um starf bæjarstjóra í Grindavík á dögunum. Þar hlaut hann þrjú atkvæði en Fannar Jónasson fjögur. Meirihlutinn í Grindavík klofnaði í því máli.
 
„Við erum afar ánægð með að ráða Þorstein til áframhaldandi starfa sem sveitarastjóra. Mikil ánægja ríkir með störf hans og báðir flokkarnir í sveitarstjórn voru með á stefnuskrá að ganga til samninga við hann. Hér eru spennandi tímar fram undan,“ segir Helgi Héðinsson oddviti sem skrifaði undir samninginn fyrir hönd sveitarstjórnar.
 
„Ég er afar þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt af þeim flokkum sem mynda sveitarstjórn Skútustaðahrepps og hlakka til komandi kjörtímabils og áframhaldandi uppbyggingar sem hér er fram undan. Ég var ráðinn um mitt síðasta kjörtímabil hingað í Mývatnssveit og þessi tvö ár sem ég hef starfað hér hafa verið viðburðarík og skemmtileg. Góð kynni af fólki, frábæru samstarfsfólki og krefjandi verkefni ásamt stórbrotinni náttúru hefur heillað mig og hlakka ég til áframhaldsins,“ segir Þorsteinn í frétt á vef Skútustaðahrepps.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024