Þorskseiði seld erlendis frá Grindavík og Höfnum
Um 30 þúsund þorskseiði frá tilraunaeldisstöðinni að Stað við Grindavík og frá eldisstöð stofnfisks í Höfnum voru nýlega seld til Hjaltlandseyja. Er þetta í fyrsta sinn sem þorskseiði eru seld úr landi. Með sölunni hefur tekist mikilvægt samstarf sem vonast er til að flýtt geti árangri í kynbótum á eldisþorski þannig að unnt verði sem fyrst að útvega íslenskum eldisaðilum sem bestan efnivið til eldis í atvinnuskyni. Með þessari seiðasölu verður hægt að bera saman árangur af eldi við ólíkar aðstæður þar sem unnt verður að greina áhrif erfða frá umhverfisáhrifum og þar með velja rétta fiskinn til undaneldis, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Hafrannsóknarstofnun.
Í tilkynningunni kemur einnig fram að um árabil hafi stofnunin stundað tilraunir með klak seiða úr þorski sem safnað hefur verði víða á hrygningarslóð og þá sérstaklega um landið suðvestanvert.
„Tilgangur tilraunanna, sem farið hafa fram í Tilraunaeldisstöð stofnunarinnar að Stað við Grindavík, hefur verið að rannsaka lífsmöguleika þorskungviðis úr mismunandi hrygningarfiski á mismunandi svæðum og tíma árs.
Undanfarin ár hefur Hafrannsóknastofnunin lagt aukna áherslu á þróun þorskeldis, m.a. hvað varðar seiðaframleiðslu, val á klakfiski frá mismunandi svæðum við landið og kynbætur í samvinnu við einkafyrirtæki. Stofnað hefur verið rekstrarfélag um seiðaframleiðslu og kynbætur, ICECOD, með þátttöku Hafrannsóknastofnunarinnar, Stofnfisks og fleiri eldisaðila. Seiðaeldi hefur farið fram í Tilraunaeldisstöðinni, en seiði síðan nýtt til prófana í strandeldi og sjókvíum við íslenskar aðstæður og til kynbóta,“ segir í tilkynningunni frá Hafrannsóknarstofnun.
Myndin: Húsnæði Stofnfisks.